top of page

HVAÐ GERIR OKKAR HÚS SÉRSTÖK?

  • Hönnuð með íslenskt landslag og veðurfar í huga

  • Sterk bygging, endingargóð efni, vönduð smíði

  • Skýr rýmisnotkun og fjölbreytt útfærsla

  • Tilbúin fyrir sveigjanlega uppsetningu og flutning

  • Umhverfisvæn þar sem hugað er að vistvænni framleiðslu og kolefnisjöfnun

  • Samspil við náttúruna – hámarksbirta, skjól og sjónlínur

MARGAR
ÚTFÆRSLUR

Skoðaðu húsin okkar hér að neðan en hafðu í huga að við bjóðum fleiri útfærslur.

 

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar.

Myndirnar opnast í „pop-up“ glugga svo nauðsynlegt er að vafrinn þinn leyfi það.

Screenshot 2025-05-08 at 14.57.57.jpg

Ásgarður – 88,3 m²

Stílhreint hús með rúmgóðu alrými og tveimur stórum svefnherbergjum. Hentar sérlega vel þeim sem leggja áherslu á opin rými og bjarta hönnun með mikla lofthæð.

Screenshot 2025-05-08 at 14.53.38.jpg

Miðgarður – 98,4 m²

Rúmgott fjölskylduhús með fjórum svefnherbergjum og opnu alrými. Skilgreind svæði fyrir samveru og næði. Kjörin lausn fyrir þá sem vilja bæði sveigjanleika og rými fyrir gesti.

Screenshot 2025-05-08 at 15.01.28.jpg

Hlégarður – 108,5 m²

Flaggskip línunnar – mikið rými, fjögur svefnherbergi og glæsilegt alrými. Valhöll er byggð fyrir þá sem vilja mesta mögulega notagildi og þægindi í sumarhúsi án þess að fórna hönnun.

5a1.jpg

Álfheimar – 58,6 m²

Vel skipulagt sumarhús sem hentar jafnt fjölskyldum sem pörum. Tvö svefnherbergi, bjart alrými og gott anddyri. Hentar vel sem fyrsta sumarhús eða huggulegt athvarf allt árið um kring.

6a3.jpg

Glitnir – 48,5 m²

Smærra hús sem nýtir plássið einstaklega vel. Hentar einstaklega vel sem gestahús, útivistarskýli eða fyrir þá sem vilja einfalt og fallegt sumarhús með öllum nauðsynlegum þáttum.

6a3.jpg

Bifröst – 78,2 m²

Bifröst er hagkvæmt og bjart heilsárshús sem hefur tvö svefnherbergi og rúmgott alrými.  Í húsinu er gottt svefnloft, hátt til lofts. Yfirbyggð verönd veitir gott skjól.  Lögð er áhersla á bjarta hönnun,  skemmtilegt fjölskyldurými og hönnun sem leggur áherslu á notagildi.

Screenshot 2025-05-08 at 14.59.59.jpg

Fólkvangur – 88.3 m²

Stílhreint hús með rúmgóðu alrými og tveimur stórum svefnherbergjum. Hentar sérlega vel þeim sem leggja áherslu á opin rými og bjarta hönnun með mikla lofthæð.

Screenshot 2025-05-08 at 14.56.27.jpg

Bilskirnir – 98,4 m²

Rúmgott fjölskylduhús með fjórum svefnherbergjum og opnu alrými. Skilgreind svæði fyrir samveru og næði. Kjörin lausn fyrir þá sem vilja bæði sveigjanleika og rými fyrir gesti.

Screenshot 2025-05-08 at 15.03.14.jpg

Valhöll – 108,5 m²

Flaggskip línunnar – mikið rými, fjögur svefnherbergi og glæsilegt alrými. Valhöll er byggð fyrir þá sem vilja mesta mögulega notagildi og þægindi í sumarhúsi án þess að fórna hönnun.

Screenshot 2025-05-08 at 14.51.24.jpg

Fensalir – 78,2 m²

Hagkvæmt og bjart heilsárshús sem hefur tvö svefnherbergi og rúmgott alrými.  Í húsinu er gottt svefnloft, hátt til lofts. Yfirbyggð verönd veitir gott skjól.  Lögð er áhersla á bjarta hönnun,  skemmtilegt fjölskyldurými og hönnun sem leggur áherslu á notagildi.

5b1.jpg

Þrymheimur–58,6 m²

Vel skipulagt sumarhús sem hentar jafnt fjölskyldum sem pörum. Tvö svefnherbergi, bjart alrými og gott anddyri. Hentar vel sem fyrsta sumarhús eða huggulegt athvarf allt árið um kring.

6b2.jpg

Gimlé – 48,5 m²

Smærra hús sem nýtir plássið einstaklega vel. Hentar einstaklega vel sem gestahús, útivistarskýli eða fyrir þá sem vilja einfalt og fallegt sumarhús með öllum nauðsynlegum þáttum.

01

ÍSLENSK HÖNNUN

Lögð er áhersla á að öll hönnun sé íslensk sem taki mið af íslenskum aðstæðum.  Arkitektastofan Undra var valin sem samstarfsaðili þar sem hugmyndir þeirra féllu vel að þeirr sýn sem átt að ná fram. Íslensk hönnuð hús með áherslu á sátt við náttúru og fólk.

02

STJÓRNUN OG SAMVINNA

Mikilvægt er að við framleiðslu húsanna sé þess vel gætt að þau fylgi þeim stöðlum sem sett hafa verið af arkitektum og sérfræðingum. Mögulegt er að viðskiptavinurinn komi að séróskum og er þess þá fylgt eftir í náinni samvinnu.

03

SJÁLFBÆRNI OG UMHVERFISVERND

Ávallt er haft í huga hvernig hægt sé að tryggja sjálfbærni og huga að umhverfisvernd, allt frá hönnun húsa til framleiðslu, flutnings, uppsetningu og frágangs.

04

FRAMLEIÐSLA, FRÁGANGUR OG SKIL

Öllu verkferli er fylgt eftir þar sem allir verkþættir þurfa að uppfylla þær kröfur sem upphaflega eru gerðar.  Farið er vandlga yfir alla þætti með viðskiptavini og einu ári eftir að hús hefur verið reist og afhent er mætt á staðinn og húsið yfirfarið til að sjá og kanna að allt sé eins og það eigi að vera samkvæmt skilalýsingu.

05

STJÓRNUN OG EFTIRLIT

Til þessi bærir aðilar fylgja öllu framleiðsluferli eftir. Einungis er unnið með viðurkenndum aðilum sem þegar hafa sýnt fram á framleiðsu sem standast þær kröfur sem gerðar eru, er byggja á reynslu og þekkingu. 

06

SÉRHÆFÐ RÁÐGJÖF

Kjarnahús býður viðskiptavinum aðstoð og ráðgjöf við hönnun húsa sem framleiða eigi síðan eftir teikningum. Jafnframt getur Kjarnahús verið þjónustuaðili við val og sölu lóða ef viðskiptavinurinn óskar eftir.

bottom of page